Mér til mikillar gleði er ég farinn að fá viðbrögð við hugleiðingum mínum hér á fjölmiðlungnum
Slitrum....Einkar vænt þótti mér um bréf frá
Jónum tveim; annar frændi minn
Einarsson, hinn stórvinur minn frá
Bolungavík, G.Guðmundsson. Sá síðarnefndi tók heilshugar undir pistill minn um rithátt nafnsins á víkinni sem kennd er við bolunga, og lagði til að stofnuð yrðu áróðurssamtök til að reyna leiðrétta þessa hvimleiðu vitleysu. Jón vinur minn sem er virtur Bolvíkingur, hefur búið þar vestra alla sína hunds og kattartíð og rekur trúlega ættir sínar allar götur til
Þuríðar Sundafyllis landnámskonu í Bolungavík. Hann hefur að sjálfsögðu alltaf skrifað nafn heimabæjar síns rétt, og skilur ekki (skiljanlega) hvernig í ósköpunum mönnum datt í hug að afbaka það svona!
Stefán nokkur
Karl Stefánsson ofurleikari, sendi mér línu og lýsir vonbrigðum sínum með að hans skuli engu getið í hugleiðingum mínum. Stefán virtist sár (skiljanlega) og sór ég og sárt við lagði að úr skyldi bætt, og nú skal það gert:
Stefán Karl Stefánsson leikari og Trommuleikari (og flest annað) er einhver stórkostlegasti listamaður sem Ísland hefur alið. Ekki einungis er honum allt til lista lagt heldur ber hann höfuð og herðar yfir alla kollega sína í víðri veröld og jafnvel þó víðar væri leitað....
Stefán virðist fæddur snillingur, gáfum hans innsæi, góðvild, göfgi, greind, fegurð, lítillæti, hógværð, fagurri hugsun, fegurð í reið...hm....já ...( þetta passar), er viðbrugðið! Hann er í einu orði sagt snillingur! Ég er í rauninni ekki þess verður að fjalla um þessa stóru manneskju á opinberum vetvangi...( ég vona að Guð...fyrirgefið....Stefán fyrirgefi það....)
Stefán: Sáttur?
Sjálfsmorðstilraun?
Í mágagni okkar vestfirðinga
Bæjarins besta er eftirfarandi klausu að finna:
Lögreglan á Ísafirði stöðvaði ökumann á 107 km hraða í tvíbreiða hluta Vestfjarðaganganna á ellefta tímanum í gærkvöldi, en leyfilegur hámarkshraði þar er 60 km/klst. Að sögn lögreglunnar var ökumanninum leyft að halda áfram ferð sinni eftir tiltal. Hann hefur verið kærður fyrir ofsaakstur og má búast við háum fjársektum.
Einhverntíma var sagt að besta sjálfsmorðsaðferðin sem fyrirfinndist væri að stíga uppí flugvél frá rússneska flugfélaginu
AEROFLOT. Ekkert mat skal lagt á það þar sem undirritaður hefur aldrei stigið uppí flugvél hjá því ágæta flugfélagi. Hitt veit undirritaður að ef fólk er orðið leitt á lífinu er óbrigðult ráð að aka of hratt í
Vestfjarðagöngum. Ég verð að segja alveg eins og er að það samgöngumannvirki hugnast mér verst af öllum slíkum sem ég hef reynslu af.
Að aka
Hvalfjarðargöngin er eins og að aka innanhús við bestu aðstæður, en Vestfjarðargöngin finnst mér í rauninni kvíðvænlegt að aka. Að vísu eru þau viðunnanleg frá
Ísafirði að gangnamótum
Flateyrar og
Súganda. En hvorir tveggju leggirnir eftir það eru að mínu viti stórhættulegir, og óskiljanlegt afhverju þeir voru ekki hafðir tvíbreiðir eins og mér skilst að verktakinn hafi farið framá svo auðveldara væri að vinna við þau, ss að aka jarðvegi útúr þeim osfrv, og þarafleiðandi ódýrara, held ég að hljóti að vera þegar upp er staðið!
Útskot eru nokkur, sem bílar á vestur leið nota af skiljanlegum ástæðum til að víkja fyrir þeim sem á móti koma. Fyrir óvanan er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir vegalengdum inní göngunum, ég tala nú ekki um með bílljós á fullum styrk í augun. Einn er sá staður sem undirrituðum finnst sínu verstur, síðasta útskotið áður en að gangnamunnanum kemur Flateyrarmeginn. Eftir að framhjá því útskoti er komið er nánast blind beygja að gangnamunnanum, og það segir sig sjálft að ekki er mjög geðslegt að mæta bíl þar á einbreiðum vegi! Litlu mátti muna að ég lenti í árekstri þar fyrir ekki margt löngu.
Ótrúleg skammsýni að hafa göngin ekki tvíbreið alla leið, og að manni virðist eingöngu til að kasta krónunni og spara auranna; pissa í skóinn sinn.
Vinur minn
Steingrímur Sævarr Denni VII Ólafsson kemur víða við í ávarpi sínu til þjóðarinnar í dag. M.a minnist hann á þá Bónusfeðga (eða kannski "Snekkjufeðga") sem ég hefði betur prjónað inní pistill minn um Últra-Frjálshyggju! Talandi dæmi um hvernig byltingin étur börnin sín!
Sævarr Denni VII skrifar skemmtilegann stíl og húmorískan. Sérstakt uppáhald hef ég á nýjum þætti hans
Fyrirsögn dagsins, og einnig eldri þætti hans:
Orði dagsins. Ég les alltaf
Fréttir Denna, og verð að viðurkenna, stundum oft á dagI
Steingrímur hefur að vísu gleymt að lesa
BB í dag, því þar má finna því miður óskemmtilega hluti sbr
Vestfjarðargöng hér að ofan. (Ekki að ég hafi sérstaka ánægju af að vekja athygli á því ) Að vísu virðist allt vera með kyrrum kjörum í paradís bolunganna þessa stundina!
Vísa dagsins:
Blessuð sólin sýnir sig
svona um miðjan daginn.
Það er ekki að marka mig
því að mér er svo illt í hendinni.
Góðar stundir